Neuro Skin Balm

Neuro Skin Balm

Regular price
8.000 kr
Sale price
8.000 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

Neuro Skin Balm 100ml

Húð sem á það til að mynda kláðabletti (taugaskinnsþrota eða neurodermatitis) þarf sérstaka meðhöndlun og reynist oft á tíðum nær ómögulegt að finna krem sem slær á þegar einkenni birtast. Margar ástæður eru fyrir myndun kláða í húðinni, en sé klórað gegn kláðanum vill kláðinn gjarnan aukast á þeim stað sem getur leitt til aukins klóars og þannig vítahrings. Hægt og hægt þykknar húðin á þeim svæðum sem eru klóruð og myndar stundum eins og hnúta með miklum kláða sem kallast hér kláðablettir.

Janssen Cosmetics hefur alltaf haft þarfir ólíkra húðgerða að leiðarljósi og lagt sérstaka vinnu í að finna lausnir gegn allskyns húðkvillum sem geta komið upp og kynna með stolti nýtt á markað Neuro Skin Balm sem veitir viðkvæmri, exem gjarni og húð sem á það til að mynda eða er stöðugt með kláðabletti einstaka meðhöndlun og virkni.

Kláðablettir eru einstaklega hvimleitt fyrirbrigði og getur tekið mjög á taugarnar að klóra ekki í viðkvæma blettina sem gerir ástandið yfirleitt verra.

Berið Neuro Skin Balm á bletti og svæði þegar einkenni byrja að myndast sem dregur strax úr frekari kláðamyndun, hita og ertingu. Hentar einnig vel til daglegrar notkunar þegar við á því sérþróuð virkni Neuro Skin Balm styrkir varnarhjúp húðarinnar með reglulegri notkun og hefur fyrirbyggjandi áhrif við exem myndun og kláðabletta.

Notkun: Berið staðbundið á bletti eða svæði daglega eða eftir þörfum.