Super Hydrating Cream

Super Hydrating Cream

Regular price
7.000 kr
Sale price
7.000 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

Super Hydrating Cream 50 ml

Mjúkt og einstaklega rakagefandi krem sem gefur rakaþurrum húðgerðum hámarks virkni af næringarríkum innihaldsefnum sem auka þéttleika og gera yfirborð húðarinnar slétt og silkimjúkt.

Allar húðgerðir þurfa raka til að viðhalda fyllingu og heilbrigði húðar, Super Hydrating Cream er hið fullkomna rakakrem fyrir allar húðgerðir til að gefa húðinni daglega næringu og auka rakamagn sem veitir vörn gegn ytra áreiti og ótímabærri öldrun húðarinnar

Kremið veitir djúpa rakagjöf niður í neðstu húðlög og fyllir húðina af raka líkt og þegar þurr svampur kemst í snertingu við vatn með sérþróaðri tækni þar sem krosstengdar samsetningar af Hyaluronic sýru myna einskonar raka-net í húðinni með „plumping „ áhrifum. Kremið er einstaklega frískandi viðkomu og gefur húðinni létta kælitilfinningu sem frískar samstundis uppá húðlitinn með mildum og náttúrulegum ilm.
Super Hydrating Cream er einnig einstaklega gott undir farða, fyrir sléttari áferð, meiri fyllingu og betri endingu farðans.

Helstu innihaldsefni:

Imperata cylindrica – Næringarríkt plöntuþykkni úr einstakri plöntu sem finnst í eyðimörkum bæði í Ástralíu og Asíu, plantan er einstaklega rík af potassium og þekkt fyrir rakabindandi eiginleika til að lifa af þurrk og harðindi. Rannsóknir sýna að húðin hefur aukið rakamagn sitt um 20% eftir aðeins 24 klst.
Hyaluronic sýra – Einstakur rakagjafi sem hefur þann eiginleika að þúsundfalda þyngd sína í vatni og bindur þannig raka í húðinni þannig að hún heldur mýkt og fyllingu.
Shea Butter – Nærir húðina, losar um herpingstilfinningu og gerir húðina mjúka viðkomu.
Macadamia Oil – Nærir húðina með verndandi áhrifum.
Allantoin – Sefandi, dregur úr ertingu