Caviar Pearl Elixir

Caviar Pearl Elixir

Regular price
12.500 kr
Sale price
12.500 kr
Regular price
Sold out
Unit price
per 
Tax included.

Nýtt Caviar Pearl Elixir í takmörkuðu upplagi núna fyrir hátíðinar á frábæru tilboði í stílhreinum og fallegum gjafapakkningum sem henta bæði fyrir hann og hana.

Lúxús perlur með djúpnærandi caviar-extract gegn öldrun húðarinnar með frumuvernd.
Áhrifarík međferđ fyrir þreytta og orkulausa húđ, einstök samsetning vítamína, steinefna og aminosýra glæđa húđina nýjum og orkumeiri ljóma og vernda hana gegn sindurefnum “free radicals” og ótímabærri öldrun.

Frumustarfsemi húđarinnar eykst og hrađar nýmyndun kollagens sem gefur húđinni aukinn þéttleika og unglegra yfirbragð.
Djúpvirkandi næring fyllir húđlögin af raka og nauđsynlegum fitusýrum sem gefa aukna fyllingu og flauelsmjúka áferđ með samspili náttúrulegra innihaldsefna á borð við rauðann-þara, sjávar-fjölsykrur og caviar-extract.

Fölt yfirbragđ og þreytumerki víkja fyrir frísklegum ljóma og bjartara yfirbragđi og hentar jafnt konum og körlum.

Serumið kemur í loftþéttum umbúðum með pumpu þar sem perlunar opnast og dreifast jafnt í gelkennda formúlu eftir því sem er pumpað úr flöskunni og tryggir þannig hámarks nýtingu, gæði og virkni með hverri pumpu!
Létt formúlan smýgur fljótt niður húðina þannig að húðin helst mött og þurr viðkomu með samstundis frískandi og þéttandi áhrifum, mildum og ferskum ilm.
Notið 1 til 2 pumpur á hreina húð og nuddið mjúklega yfir andlit og háls þar til serumið hefur síast niður húðina, notist eitt og sér eða undir annað krem á hreina húð kvölds og morgna.