
Bio Fruit Gel Exfoliator 30ml
Orkumikið AHA-djúphreinsigel sem endurlífgar húðina og gefur samstundis ljóma!
Sérþróuð samsetning ávaxtasýra örva húðflögnun og náttúrulega frumuendurnýjun.
Djúpvirkandi formúlan hreinsar stíflaðar húðholur, dregur úr fílapensla og bólumyndun og hefur samherpandi áhrif á opnar húðholur.
Ávaxtasýrur auka jafnvægi húðarinnar viðhadla raka og draga úr offramleiðslu fitukritla, minnka misfellur og gera húðina sýnilega sléttari. Hefur lýsandi áhrif á dökka bletti og jafnar náttúrulegan húðtón, húðin verður bjartari og fær líflegan orkuljóma.
-
Ávaxtasýrur hafa góð áhrif á allar húðgeðir sem mega við aukinni örvun og virkni, þú finnur bókstaflega fyrir virkninni á yfirborði húðarinnar sem fær samstundis líflegri tón og ljóma.
Fullkominn djúphreinsir fyrir grófa-, opna-, bólótta- og vandamálahúð vegan leiðréttandi áhrifa og hraðari endurnýjunar, hentar einnig eldri húðgerðum sem vantar orkuboozt.
Góður kostur fyrir húð sem þolir ekki kornakrem þar sem kornin geta reynst of ertandi á yfirborði fyrir aumar bólgur og bólótta húð, jafnvel setið föst í stórum húðholum og valdið enn meiri stíflum.
Inniheldur m.a.: Glycolic, Malic, Tartaric og Sítrus sýru.
ATH. Forðast skal sól og ljósabekki þar sem húðin verður ljósnæmari við notkun ávaxtasýra.